07.08.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Cannavaro til Inter Milan. (Staðfest)
Fabio Cannavaro varnarmaður Parma á Ítalíu gekk í dag til liðs við Inter Milan. Cannavaro, sem er 29 ára gamall, hefur leikið síðustu sjö tímabil með Parma en skrifaði í kvöld undir fjögurra ára samning við Inter.
