Fotbolti.net
14.11.26 - 20:11
Ívan Guðjón Baldursson

U15 náði í eitt stig á gríðarlega sterku þróunarmóti

U15 náði í eitt stig á gríðarlega sterku þróunarmóti
Canon

Mynd: KSÍ

Kvennaboltinn
U15 landslið kvenna fékk eitt stig úr þremur leikjum á gríðarlega sterku þróunarmóti UEFA sem lauk í dag.
Stelpurnar byrjuðu á fjögurra marka tapi gegn heimastelpum í liði Spánverja áður en þær gerðu skemmtilegt jafntefli við Belgíu.

Freyja Stefánsdóttir, Harpa Karen Karlsdóttir og Thelma Lind Heimisdóttir skoruðu mörkin í sex marka jafntefli gegn Belgum, en þeim tókst ekki að endurtaka leikinn í lokaumferðinni.

Ísland spilaði við Þýskaland í síðasta leiknum og tapaði 2-0. Stelpurnar enda því mótið með eitt stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.