Fotbolti.net
14.11.26 - 18:34
Ívan Guðjón Baldursson
Franska deildin

Sage hafnaði viðræðum við nokkur félög

Sage hafnaði viðræðum við nokkur félög
Canon

Mynd: Crystal Palace

Pierre Sage var rekinn úr starfi sínu hjá Crystal Palace á dögunum og hefur síðan þá hafnað viðræðum við nokkur áhugasöm félög.
Sage rekinn frá Palace eftir 16 leiki (Staðfest)
TENGT EFNI

Sage rekinn frá Palace eftir 16 leiki (Staðfest)

Sage hefur ákveðið að taka sér frí frá fótbolta og greina fjölmiðlar frá því að hann hafi hafnað að fara í viðræður við að minnsta kosti tvö félagslið í heimalandinu.

Hann neitaði að ræða við sitt fyrrum félag Lens, sem hefur ekki tekist að fylla nægilega vel í skarðið sem Sage skildi eftir þegar hann var ráðinn til Palace í sumar. Lens er aðeins með 13 stig eftir 10 umferðir eftir að hafa endað í öðru sæti á síðustu leiktíð.

Dino Toppmöller og Yannick Cahuzac hafa báðir reynt fyrir sér við stjórnvölinn hjá Lens frá því að Sage skipti um félag og var Didier Digard svo ráðinn á dögunum, eftir að Sage hafnaði að hefja viðræður.

Þá neitaði hann að fara í viðræður við Strasbourg sem hefur farið mjög illa af stað á nýju tímabili og er starf Hugo Oliveira þjálfara í bráðri hættu. Hann var ráðinn til Strasbourg í sumar sem arftaki fyrir Gary O'Neil, sem samdi við Ipswich Town.
Sage hafnaði viðræðum við nokkur félög
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.