14.11.26 - 19:10
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin: Haaland með mark og stoðsendingu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Erling Braut Haaland var á sínum stað í byrjunarliði Noregs sem lagði Wales að velli í Þjóðadeildinni í dag.
Wales vann óvænt fyrri leik liðanna í síðasta landsleikjaglugga og var staðan markalaus eftir nokkuð jafnan og tíðindalítinn fyrri hálfleik í Osló.
Norðmenn mættu grimmir út í seinni hálfleikinn og náði kantmaðurinn knái Antonio Nusa forystunni með laglegu einstaklingsframtaki í kjölfar hornspyrnu á 59. mínútu.
Tæpum tíu mínútum síðar fékk Haaland boltann á hættulegum stað og gaf góða sendingu á Andreas Schjelderup sem kláraði af stuttu færi til að tvöfalda forystuna.
Lærlingar Craig Bellamy í liði Wales áttu sínar rispur í síðari hálfleiknum og minnkuðu muninn á 79. mínútu þegar úrvalsdeildarleikmennirnir Harry Wilson og David Brooks tengdu vel saman til að koma boltanum í netið.
Það var spenna á lokakaflanum allt þar til Haaland innsiglaði sigur heimamanna með marki af vítapunktinum á 88. mínútu, svo lokatölur urðu 3-1.
Norðmenn eiga 6 stig eftir 5 umferðir í jöfnum riðli þar sem hart er barist um 2. sætið. Noregur situr í 2. sæti sem stendur og spilar mögulegan úrslitaleik við nágranna sína frá Danmörku í lokaumferðinni.
Wales er með 3 stig á botni riðilsins og hefur ekki lengur möguleika á öðru sætinu. Lærlingar Bellamy þurfa að sigra heimaleik gegn Portúgal í lokaumferðinni til þess að eiga möguleika á þriðja sætinu, í ljósi þess að botnliðið fellur niður í B-deildina.
Tveimur leikjum er lokið í B-deildinni í dag. Þar gaf Dominik Szoboszlai stoðsendingu í sigri Ungverjalands í Georgíu á meðan Kósovó og Ísrael gerðu markalaust jafntefli.
Ungverjar eru í harðri baráttu við Norður-Íra um toppsæti riðilsins á meðan Kósovó þarf að treysta á jákvæð úrslit í Austurríki í kvöld til að eiga áfram möguleika á toppsætinu í sínum riðli.
Noregur 3 - 1 Wales
1-0 Antonio Nusa ('59 )
2-0 Andreas Schjelderup ('68 )
2-1 David Brooks ('79 )
3-1 Erling Haaland ('88 , víti)
Kósovó 0 - 0 Ísrael
Rautt spjald: Veldin Hodza, Kósovó ('67)
Georgía 0 - 2 Ungverjaland
0-1 Lasha Dvali ('73 , sjálfsmark)
0-2 Barnabas Varga ('85 )