Fotbolti.net
07.08.12 - 09:48
Elvar Geir Magnússon

Santi Cazorla til Arsenal (Staðfest)

Santi Cazorla til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur keypt Santi Cazorla frá Malaga en kaupverðið var ekki gefið upp. Þessi 27 ára sókndjarfi miðjumaður skrifaði undir langtímasamning.

„Santi Cazorla er frábær styrkur fyrir okkur. Hann er með mikla reynslu, bæði með félagsliðum og landsliðum. Hann kemur með aukin gæði í okkar hóp,\" segir Arsene Wenger, stjóri Arsenal.
„Hann getur spilað allstaðar á miðsvæðinu og býr yfir góðum hraða. Hann er með mikkla tækni og er mikill fengur fyrir Arsenal.\"

Cazorla var valinn spænski leikmaður ársins 2007 en hann sagði eftir undirskriftina:

„Það er mjög ánægjulegt að ganga til liðs við Arsenal, Þetta er félag með frábæra leikmenn, magnaðan leikvang og mikinn stuðning. Félagið hefur einn besta knattspyrnustjóra fótboltaheimsins og leikstíll þess þekktur og dáður um allan heim.\"

„Ég mun gera mitt besta til að hjálpa Arsenal að berjast um titla og gera stuðningsmenn ánægða.\"

Cazorla er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Arsenal í sumar en áður hafði félagið fengið Lukas Podolski frá Köln og Olivier Giroud frá Montpellier.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.