Fotbolti.net
07.08.12 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Markus Rosenberg til WBA (Staðfest)

Markus Rosenberg til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur gert þriggja ára samning við sænska framherjann Markus Rosenberg.

Þessi 29 ára gamli leikmaður kemur frítt til WBA eftir að samningur hans við Werder Bremen rann út fyrr í sumar.
Markus var með tilboð frá Spáni, Þýskalandi, Tyrklandi, Rússlandi og Kína en ákvað á endanum að velja WBA.

Rosenberg mun auka samkeppnina í fremstu víglínu WBA en koma hans til félagsins þýðir að Peter Odemwingie eða Simon Cox gætu verið á förum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.