07.08.12 - 17:04
Magnús Már Einarsson
Luis Suarez framlengir við Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Luis Suarez hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við Liverpool en félagið staðfesti þetta á heimasíðu sinni nú rétt í þessu.
,,Að skrifa undir nýjan samning við Liverpool er ótrúlegt fyrir mig því ég er svo ánægður hjá félaginu og í þessari borg,\" sagði Suarez eftir að hann skrifaði undir.
,,Ég vil segja takk við stuðningsmennina því þeir eru okkar tólfti leikmaður. Stuðningsmennirnir hjá Liverpool eru ótrúlegir.\"
,,Fyrir fimm eða sex árum horfði ég á leikvanginn og félagið spila í sjójnvarpinu og núna spila ég hér og stuðningsmennirnir hafa hjálpað mér. Það er mikilvægt fyrir mig.\"
Suarez var orðaður við Juventus í sumar en nú er ljóst að hann mun ekki fara neitt á næstunni.
,,Ég er ánægður. Þegar þú færð tækifæri til að vinna með heimsklassa leikmönnum þá er það frábært,\" sagði Brendan Rodgers stjóri Liverpool.
,,Það voru nokkur félög sem höfðu áhuga á honum en í sumar höfum við náð vel saman og hann hefur skuldbundið sig til að vera hér í langan tíma.\"
Liverpool keypti Suarez frá Ajax í janúar 2011. Hann hefur síðan verið uppáhald stuðningsmanna liðsins og hefur skorað 21 mark í 52 leikjum fyrir félagið.

Heimild: Heimasíða Liverpool