07.08.12 - 20:48
Elvar Geir Magnússon
Enes Cogic tekur við Aftureldingu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Enes Cogic hefur tekið við þjálfun Aftureldingar í 2. deild út þetta keppnistímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild félagsins.
Þorsteinn Magnússon lét af störfum í síðustu viku í kjölfarið á slæmum úrslitum en fyrir tímabilið setti liðið stefnuna upp. Afturelding er í sjötta sætinu, sex stigum frá því öðru.

Baldvin Jón Hallgrímsson verður aðstoðarþjálfari. Enes og Baldvin stjórnuðu sinni fyrstu æfingu í kvöld og voru þá kynntir sem þjálfarar fyrir leikmönnum Aftureldingar.
Enes Cogic, sem er fæddur í Bosníu, kom til Íslands sem leikmaður árið 1992. Hann spilaði með Haukum, ÍR og Selfossi en lengst af með Fylki. Hann hefur starfað sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Aftureldingu síðustu tvö ár.
Baldvin Jón Hallgrímsson þekkir vel til í Mosfellsbænum. Hann hefur mikla reynslu sem leikmaður og hefur leikið í öllum deildum, meðal annars með Val, Þrótti, Leiftri, Völusungi og ÍR. Enes og Baldvin Jón léku saman hjá Fylki um tíma.
Hér að neðan má sjá mynd af þjálfurunum á æfingu í kvöld.

Baldvin og Enes á æfingunni í kvöld.

Mynd: Raggi Óla