Fotbolti.net
07.09.12 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Wilhelmsson kominn til LA Galaxy (Staðfest)

Wilhelmsson kominn til LA Galaxy (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Christian Wilhelmsson, sænskur vængmaður, er genginn til liðs við David Beckham og félaga í LA Galaxy í Bandaríkjunum.

Wilhelmsson kom til Galaxy á miðvikudaginn og fékk afhenta treyju númer 9, en hann hefur spilað fyrir Al-Hilal og Al Ahli í Sádí Arabíu síðustu fjögur árin.
,,Hann er leikmaður með mikla reynslu af að spila á kantinum,\" sagði Bruce Arena, yfirþjálfari Galaxy.

,,Okkur vantaði leikmann sem getur spilað vítt. Þetta er eitthvað sem liðið getur nýtt sér.\"

Wilhelmsson á 78 landsleiki að baki fyrir sænska landsliðið og er 32 ára gamall, en hann þarf nokkrar aðlögunarvikur í Bandaríkjunum áður en hann verður kominn í nægilega gott leikform til að spila heilan leik fyrir Galaxy.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.