Það er búið að opinbera byrjunarliðin fyrir leik Íslands og Moldóvu í undankeppni EM 2020. Leikurinn er á Laugardalsvelli og hefst 16:00.
Vörnin er sú sama og í leikjunum tveimur í júní; Hannes í markinu og fyrir framan hann eru Hjörtur, Raggi og Kári, Ari Freyr.
Á miðjunni eru Aron Einar og Gylfi og á köntunum eru Arnór Ingvi Traustason og Birkir Bjarnason. Framlínan minnir óneitanlega á EM 2016. Kolbeinn Sigþórsson og Jón Daði Böðvarsson eru fremstir.
Byrjunarliðið má sjá hér að neðan, en textalýsingu má finna hér
Byrjunarlið Íslands:
1. Hannes Þór Halldórsson
2. Hjörtur Hermannsson
6. Ragnar Sigurðsson
8. Birkir Bjarnason
9. Kolbeinn Sigþórsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
14. Kári Árnason
17. Aron Einar Gunnarsson (f)
21. Arnór Ingvi Traustason
22. Jón Daði Böðvarsson
23. Ari Freyr Skúlason
This is how we start our @UEFAEURO qualifying game against Moldova today!#fyririsland pic.twitter.com/ca3BmTeg5d
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) September 7, 2019
Athugasemdir