Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. september 2019 22:00
Brynjar Ingi Erluson
Giroud þriðji markahæsti í sögu Frakklands
Olivier Giroud skoraði 36. mark sitt fyrir franska landsliðið í kvöld
Olivier Giroud skoraði 36. mark sitt fyrir franska landsliðið í kvöld
Mynd: EPA
Olivier Giroud, framherji Chelsea og franska landsliðsins, skoraði 36. landsliðsmark sitt í kvöld og er nú þriðji markahæsti leikmaður landsliðsins ásamt David Trezeguet.

Giroud gerði annað mark Frakkland í 4-1 sigrinum á Albaníu í kvöld en hann gerði það eftir góða fyrirgjöf frá Lucas Hernandez.

Þessi stóri og stæðilegi framherji elskar að skora með landsliðinu þó hann eigi eftir með að tryggja byrjunarliðssæti hjá félagsliðum.

Hann gerði 36. mark sitt fyrir Frakkland og er nú þriðji markahæsti leikmaðurinn frá upphafi en hann deilir sætinu með David Trezeguet, fyrrum framherja Juventus.

Aðeins Thierry Henry og Michael Platini hafa skorað fleiri mörk en Henry er með 51 landsliðsmark á meðan Platini er með 41 mark.

Giroud á því tækifæri á því að ná þeim báðum en hann er 32 ára gamall.


Athugasemdir
banner
banner