Leikmannahópur Íslands í Þjóðadeildinni - Sandra Sig og Fanney markmenn Vals valdar

Sandra snýr aftur í landsliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sædís Rún Heiðarsdóttir er valin í hópinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fanney Inga er orðin landsliðsmarkvörður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra snýr aftur í landsliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari Íslands hefur tilkynnt leikmannahóp sinn sem mætir Wales og Þýskalandi í Þjóðadeildinni síðar í mánuðinum.
Fréttamannafundur Þorsteins þar sem hann fer yfir hópinn verður í höfuðsstöðvum KSÍ klukkan 13:15 og við munum koma með helstu tíðindi þaðan í kjölfarið.
Leikið verður gegn Wales á Laugardalsvelli föstudaginn 22. september næstkomandi og gegn Þjóðverjum í Bochum þriðjudaginn 26. september.
Ljóst er að miklar breytingar hafa orðið á liði Íslands á einu ári en síðan liðið fór á EM í Englandi síðasta sumar eru Sara Björk Gunnarsdóttir, Sif Atladóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hættar í landsliðinu.
Elín Metta Jensen og Sandra Sigurðardóttir eru nýlega byrjaðar að nýju eftir að hafa hætt í fótbolta og Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Elísa Viðarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir eru óléttar. Þá er Cecilía Rán Rúnarsdóttir markvörður lengi frá eftir að hafa farið úr hnjálið.
Liðið spilaði síðast æfingaleiki gegn Finnum og Austurríki í júlí og síðan þá eru nokkrar breytingar.
Sandra Sigurðardóttir markvörður snýr aftur í landsliðið eftir einn leik með Val og aðalmarkvörður Vals, Fanney Inga Birkisdóttir kemur einnig inn. Út fara Auður Scheving og Cecilía Rán Rúnarsdóttir sem er lengi frá vegna meiðsla.
Guðný Árnadóttir snýr aftur eftir meiðsli eins og Ingibjörg Sigurðardóttir. Ásta Eir Árnadóttir og Anna Rakel Pétursdóttir fara út en þær hafa glímt við meiðsli. Arna Eiríksdóttir er einnig í hópnum en Elísa Viðarsdóttir er ólétt. Þá er Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir ekki valin en bakvörðurinn Sædís Rún Heiðarsdóttir valin í fyrsta sinn. Sandra María Jessen snýr aftur en Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er hætt.
Markverðir:
Sandra Sigurðardóttir - Valur
Telma Ívarsdóttir - Breiðablik
Fanney Inga Birkisdóttir - Valur
Varnarmenn:
Guðný Árnadóttir - AC Milan
Ingibjörg Sigurðardóttir - Valerenga
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern München
Arna Eiríksdóttir - FH
Guðrún Arnardóttir - Rosengård
Arna Sif Ásgrímsdóttir - Valur
Sædís Rún Heiðarsdóttir - Stjarnan
Miðjumenn:
Berglind Rós Ágústsdóttir - Valur
Hildur Antonsdóttir - Fortuna Sittard
Alexandra Jóhannsdóttir - Fiorentina
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayer Leverkusen
Selma Sól Magnúsdóttir - Rosenborg
Amanda Andradóttir - Valur
Framherjar:
Sandra María Jessen - Þór/KA
Agla María Albertsdóttir - Breiðablik
Sveindís Jane Jónsdóttir - Wolfsburg
Svava Rós Guðmundsdóttir - Gotham FC
Hlín Eiríksdóttir - Kristianstad
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Breiðablik
Diljá Ýr Zomers - Leuven

Sædís Rún Heiðarsdóttir er valin í hópinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fanney Inga er orðin landsliðsmarkvörður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð








