07.10.18 - 20:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
John Terry leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Terry var lengi vel fyrirliði Chelsea.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

John Terry hefur lagt skóna á hilluna, hann er hættur í fótbolta.
Terry, sem er 37 ára gamall, hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Aston Villa í sumar.
Varnarmaðurinn tilkynnti það á Instagram að hann væri hættur. „Eftir 23 ótrúleg ár sem fótboltamaður hef ég ákveðið að núna sé rétti tíminn til að hætta að spila."
Terry spilaði 78 landsleiki fyrir England en lengst af á ferlinum spilaði hann með Chelsea og var fyrirliði liðsins. Hann er klárlega einn besti leikmaður í sögu Chelsea.
Hann vann ensku úrvalsdeildina fimm sinnum, FA-bikarinn fimm sinnum og Meistaradeildina í eitt skipti sem leikmaður Chelsea. Hann vann líka deildabikarinn fimm sinnum og Evrópudeildina í þeim rúmlega 700 leikjum sem hann spilaði fyrir Chelsea.
Terry var nálægt því að ganga í raðir Spartak Moskvu í Rússlandi á dögunum en taldi það ekki rétt skref af fjölskylduástæðum.
Í dag var Terry orðaður við aðstoðarstjórastöðuna hjá Aston Villa en Thierry Henry er líklegur til að taka við liðinu.