Verður John Terry hægri hönd Henry hjá Aston Villa?
Enskir fjölmiðlar keppast við að greina frá því að Thierry Henry er líklegastur til að taka við stjórastarfinu hjá Aston Villa.
Búist var við að John Terry væri áhugasamur um starfið en nýjustu fregnir herma að hann verði ráðinn aftur til félagsins sem aðstoðarmaður Henry.
Terry vill fara út í þjálfun og hefur verið að safna reynslu með yngri liðum Chelsea, sem jafnast ekki á við þá reynslu sem hann getur öðlast sem aðstoðarknattspyrnustjóri Aston Villa.
Henry er aðstoðarþjálfari belgíska landsliðsins og hefur þegar rætt við stjórnendur Villa.
Óljóst er hvort Henry myndi taka við félaginu strax eða eftir landsleikjahléð þar sem Belgía á leiki við Sviss og Holland.



