Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 07. október 2019 12:15
Brynjar Ingi Erluson
Keown: Hálfgerður brandari þegar Fred fær boltann
Fred í leik með Manchester United
Fred í leik með Manchester United
Mynd: Getty Images
Martin Keown, fyrrum varnarmaður Arsenal og enska landsliðsins, hefur ekki miklar mætur á brasilíska miðjumanninum Fred en hann var arfaslakur í 1-0 tapi Manchester United gegn Newcastle í gær.

Fred hefur spilað í sjö lekjum í öllum keppnum á tímabilinu en hann hefur ekki enn skorað mark og hefur þá aðeins lagt upp eitt mark en það gerði hann í Evrópudeildinni.

Hann var keyptur frá Shakhtar á síðasta ári en hefur ekki tekist að heilla. Keown, sem er spekingur í Match of the Day á BBC, er ekki mikill aðdáandi brasilíska miðjumannsins.

„Þeir eru svo klaufalegir þegar þeir eru með boltann. Fred tildæmis, það er orðinn hálfgerður brandari þegar hann fær boltann, því hann verður að geta stjórnað honum og sent hann áfram," sagði Keown.

„Ef þetta er miðjan þá verður ekki skapað mikið á þessu tímabili," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner