Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 07. október 2019 11:18
Magnús Már Einarsson
Victor Valdes rekinn frá Barcelona
Victor Valdes.
Victor Valdes.
Mynd: Getty Images
Victor Valdes, fyrrum markvörður Barcelona, hefur verið rekinn úr starfi sem þjálfari U19 ára liðs félagsins.

Valdes tók við U19 ára liði Barcelona í sumar en hann hefur nú verið rekinn eftir rifrildi við Patrick Kluivert.

Kluivert, sem er fyrrum framherji Barcelona, tók við sem yfirmaður í La Masia akademíunni hjá félaginu í sumar.

Kluivert og Valdes lenti saman og nú hefur sá síðarnefndi verið rekinn úr starfi.

Franc Artiga, sem þjálfaði varalið U19 ára liðs Barcelona hefur nú verið gerður að aðalþjálfara.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner