Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 07. desember 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Bayern heimsækir toppliðið
Það er rosalegur dagur framundan í þýska boltanum þar sem topplið Borussia Mönchengladbach tekur á móti margföldum Þýskalandsmeisturum FC Bayern.

Gladbach er með 28 stig eftir 13 umferðir á meðan Bayern hefur verið að misstíga sig mikið og er í fjórða sæti, fjórum stigum fyrir aftan. Bayern rak Niko Kovac úr þjálfarastólnum fyrr í haust og er Hans-Dieter Flick við stjórn þar til nýr þjálfari finnst.

Vert er að fylgjast með Robert Lewandowski sem er kominn með 16 mörk á deildartímabilinu. Næstu menn eru með 13 (Timo Werner), 10 (Rouwen Hennings) og 7 (Wout Weghorst) mörk skoruð.

Það eru þó fleiri stórleikir í dag þar sem RB Leipzig tekur á móti Hoffenheim. Leipzig er búið að vinna fjóra leiki í röð og er einu stigi eftir Gladbach á meðan Hoffenheim hefur ekki gengið jafn vel og situr liðið í áttunda sæti, sex stigum frá Leipzig.

Borussia Dortmund tekur þá á móti Fortuna Düsseldorf á meðan liðsfélagar Alfreðs Finnbogasonar í Augsburg fá Mainz í heimsókn.

Bayer Leverkusen og Schalke eigast svo við í síðasta leik dagsins. Þrjú stig skilja liðin að í Evrópubaráttunni.

Leikir dagsins:
14:30 Gladbach - Bayern
14:30 Leipzig - Hoffenheim
14:30 Dortmund - Dusseldorf
14:30 Augsburg - Mainz
14:30 Freiburg - Wolfsburg
17:30 Leverkusen - Schalke
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp
banner
banner
banner