Everton vann Arsenal með tveimur mörkum gegn einu í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Richarlison og Demarai Gray skoruðu mörk Everton en Martin Ödegaard skoraði mark Arsenal.
Reyndar kom Richarlison boltanum þrisvar í netið en tvö mörk voru dæmd ógild þar sem hann var rangstæður.
Hann var rétt fyrir innan í báðum atvikunum en þá sérstaklega því síðara. Hann gerði létt grín af þessu á Twitter eftir leikinn og setti mynd af sér með boltann og skrifaði „Þrenna". Leikmenn fá alltaf að taka boltann með sér heim þegar þeir skora þrennu.
Hat trick! 😂😂😂 pic.twitter.com/3XEClRYSMt
— Richarlison Andrade (@richarlison97) December 7, 2021
Athugasemdir