08.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Bowyer búinn að semja við West Ham!! (Staðfest)
Lee Bowyer er búinn að skrifa undir 6 mánaða samning við West Ham og leikur því með félaginu til loka tímabilssins. Hann verður í liðinu sem mætir Newcastle á sunnudag. Bowyer samþykkti samninginn nú í kvöld og komst í gegnum læknisskoðun að því loknu.
Þetta kemur sama dag og hann var dæmdur í 6 leikja bann af Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA en það er nokkuð sem West Ham menn þurfa ekki að óttast enda fá þeir ekki að keppa í Evrópukeppni. Samkvæmt nýja samningnum fær Leeds United aðeins 300 þúsund pund fyrir Bowyer auk bónusgreiðslu ef West Ham heldur sér í deildinni. Ástæða þess að Leeds samþykkir þetta lága greiðslu er til að fá eitthvað fyrir leikmanninn en samningur hans rennur út í sumar. Leeds náði einnig samkomulagi við Bowyer um endurgreiðlu á þeim peningum sem hann skuldar þeim vegna réttarhaldanna yfir honum og Jonathan Woodgate.
