Fotbolti.net
08.01.18 - 09:10
Magnús Már Einarsson

Emil Lyng frá KA til Dundee (Staðfest)

Emil fagnar marki í fyrrasumar.

Emil fagnar marki í fyrrasumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Dundee United hefur samið við danska sóknarmiðjumanninn Emil Lyng en hann lék með KA á síðasta tímabili.

Emil gerði samning við Dundee sem gildir út tímabilið í Skotlandi en því lýkur 28. apríl. Því gæti Emil gengið aftur í raðir KA fyrir sumarið í Pepsi-deildinni.
Emil skoraði níu mörk í tuttugu leikjum í Pepsi-deildinni með KA í fyrra.

Hinn 28 ára gami Emil hefur verið í samningaviðræðum við KA síðan tímabilinu lauk í haust en nú hefur hann samið við Dundee.

Emil var á mála hjá franska félaginu Lille á árunum 2008 til 2011 en hann lék síðan í Danmörku og Sviss áður en hann kom til KA. Nokkur íslensk félög höfðu rætt við Emil áður en hann samdi við KA fyrir síðasta tímabil.

Dundee er í öðru sæti í skosku B-deildinni og í harðri baráttu um að komast upp í úrvalsdeildina.

Sjá einnig:
Bestur í 6. umferð: Hef ekki tölu á húðflúrunum (Viðtal við Emil frá því í júní)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.