Fotbolti.net
08.01.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hrafnhildur Hjaltalín í Fjölni (Staðfest)

Hrafnhildur Hjaltalín í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fjölnir

Kvennaboltinn
Hrafnhildur Hjaltalín er búin að skrifa undir eins og hálfs árs samning við Fjölni sem gildir út sumarið 2019.

Hrafnhildur verður 19 ára gömul á árinu og á þrjá keppnisleiki fyrir HK/Víking að baki.
Fjölnir mun leika í 1. deild næsta sumar og verður áhugavert að sjá hvort Hrafnhildur nái að brjóta sér leið í byrjunarliðið.

„Við bjóðum hana velkomna í félagið og hlökkum til að sjá hana í Fjölnistreyjunni á komandi leiktíð,\" stendur í tilkynningu frá Fjölni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.