Fotbolti.net
08.01.18 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Karanka nýr stjóri Nottingham Forest (Staðfest)

Karanka nýr stjóri Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aitor Karanka er búinn að skrifa undir tveggja og hálfs árs samning við Nottingham Forest.

Karanka er 44 ára gamall Spánverji sem hóf þjálfaraferilinn með U16 landsliði Spánverja. Eftir það fór hann til Real Madrid þar sem hann var aðstoðarþjálfari í þrjú ár.
Í nóvember 2013 tók Karanka við Middlesbrough og stýrði félaginu með góðum árangri þar til hann var rekinn í mars í fyrra.

Nottingham er í 14. sæti Championship deildarinnar, ellefu stigum frá umspilsbaráttunni. Liðið er einnig komið í fjórðu umferð enska bikarsins eftir að hafa sent ríkjandi meistara Arsenal heim.

Fyrsti leikur Nottingham undir stjórn Karanka verður á laugardaginn, gegn Birki Bjarnasyni og félögum í Aston Villa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.