Fotbolti.net
08.02.19 - 21:33
Brynjar Ingi Erluson

Þór/KA fær fyrrum framherja Heerenveen (Staðfest)

Þór/KA fær fyrrum framherja Heerenveen (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kvennaboltinn
Þór/KA er búið að semja við hollensku knattspyrnukonuna Iris Achterhof en hún var á mála hjá Heerenveen í þrjú ár.
Achterhof er fædd árið 1997 í Groningen og lék með nokkrum áhugamannaliðum áður en hún samdi við Heerenveen. Hún lék þar í þrjú ár áður en hún hélt til Bandaríkjanna í háskóla.

Hún hefur leikið með ODU-háskólanum í Virginíu og staðið sig þar með prýði.

Nú hefur hún gert samning við Þór/KA og mun spila með liðinu á komandi tímabili en hún hittir liðið í æfingaferð á Spáni og mætir síðan í fyrsta leikinn í Íslandsmótinu í kjölfarið.

Það verður fróðlegt að fylgjast með henni en Þór/KA hefur misst mikið af leikmönnum eftir síðasta tímabil en þar má nefna Söndru Maríu Jessen og þá fór Andrea Mist Pálsdóttir til Austurríkis. Anna Rakel Pétursdóttir samdi þá við Linköping í Svíþjóð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.