Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 08. mars 2021 09:30
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Andri sýnir æfingar í sóttkví
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Allir leikmenn norska félagsins Start voru í sóttkví í síðustu viku eftir að smit kom upp hjá félaginu.

Jóhannes Harðarson, þjálfari Start, lét leikmenn fá æfingar til að sinna heima á meðan þeir voru í sóttkví og félagið hefur nú birt myndband þar sem Guðmundur Andri Tryggvason sýnir hluta af æfingunum.

Guðmundur Andri var meiddur allt síðasta tímabil en hann er nú kominn í gott form.

„Ég hlakka til tímabilsins. Ég held að ég muni fá góð tækifæri og spila mikið. Ég er búinn að æfa vel og ég hef lagt hart að mér," sagði Andri.

„Ég vil fyrst og fremst vera meiðslalaus og festa mig í sessi í liðinu á þessu tímabili. Ég vil líka verða betri 1 á móti 1 og varnarlega."

Hér að neðan má sjá æfinguna hjá Guðmundi Andra.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner