Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 08. mars 2021 11:00
Magnús Már Einarsson
Moyes myndi ekki selja Rice á 100 milljónir punda
Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri West Ham, segir að hann myndi ekki selja Declan Rice frá félaginu á 100 milljónir punda.

Hinn 22 ára gamli Rice hefur verið orðaður við Chelsea og Manchester United.

David Sullivan, annar af eigendum West Ham, hefur talað um að verðmiðinn á Rice hljóði upp á 100 milljónir punda en Moyes myndi ekki samþykkja að selja hann fyrir þá upphæð.

Moyes segir að Rice sé miklu meira virði.

„Ég vil ekki segja hver verðmiðinn er en ég myndi ekki samþykkja neitt eins og þetta, það er klárt," sagði Moyes.
Athugasemdir
banner
banner
banner