Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 08. mars 2021 20:40
Victor Pálsson
Myndband: Tuchel óánægður með Werner - „Skilurðu mig ekki?"
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, var ósáttur með framherjann Timo Werner í kvöld er liðið spilaði við Everton.

Werner byrjaði leikinn í fremstu víglínu Chelsea en eins og oft þá spilar Þjóðverjinn mikið vinstra megin á vellinum.

Tuchel var óánægður með sinn mann í fyrri hálfleiknum og vildi sjá hann færa sig yfir til hægri sem Werner gerði lítið af.

Það eru engir áhorfendur á vellinum þessa dagana og náðist myndband af Tuchel öskra á landa sinn á hliðarlínunni.

„Timo, hversu lengi ætlarðu að spila vinstra megin? Þú ert hægra megin! Síðustu 15 mínúturnar hefurðu aðeins verið vinstra megin. Skilurðu mig ekki?" sagði Tuchel.

Tuchel hefur vonandi náð að ræða betur við Werner í hálfleik en hann náði ekki að skora í 2-0 sigri.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner