Ajax og Roma áttust við í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.
Rómverjar fóru með mjög öflugan sigur af hólmi þar sem Roger Ibanez gerði sigurmarkið þegar þrjár mínútur voru til leiksloka.
Þegar uppbótartíminn var í gangi fékk Roma innkast. Eins og gengur og gerist þá taka lið sér oftar en ekki dágóðan tíma í að framkvæma þau þegar þau eru að vinna.
Riccardo Calafiori ætlaði að fara hægt að boltanum þegar boltasækir Ajax tók sig til og henti boltanum af miklum krafti í Calafiori.
Calafiori var ekki sáttur með þetta og sagði nokkur vel valin orð við drenginn. Calafiori fékk gult spjald fyrir að tefja.
Elska þetta alvöru passion hjá boltastráknum hjá Ajax😂😂 pic.twitter.com/kai1Pp1spB
— Arnar Laufdal (@AddiLauf) April 8, 2021
Athugasemdir