Charlie Adam, samlandi Kieran Tierney, segir að Skoski bakvörður sé orðinn nógu góður til þess að ganga til liðs við félög á borð við Real Madrid og Manchester City.
Tierney var mikið meiddur þegar hann var nýkominn til Arsenal en á þessu tímabili hefur hann haldist nokkuð heill og spilað mjög vel.
Adam, sem er fyrrverandi leikmaður Liverpool og Blackpool á meðal annars, segir að Tierney sé orðinn frábær leikmaður.
„Myndi það koma mér á óvart ef Real Madrid, Manchester City eða eitthvað annað stórlið myndi reyna kaupa hann í sumar? Alls ekki," sagði Adam.
„Hann er tilbúinn. Hann er 23 ára og kom til Arsenal þegar hann var meiddur. Hann hefur hins vegar komið til baka og þróast í frábæran leikmann."
„Hann getur komist á stærsta sviðið. Hann er um 50 milljóna punda virði."
Tierney er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Arsenal en hann gefur sig allan fram fyrir félagið. Margir hafa kallað eftir því að hann fengi fyrirliðabandið.
Athugasemdir