Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Jón Óli léttur: Mannandskotinn kemur úr logninu úr miðbæ Reykjavíkur
Gylfi Tryggva: Ógeðistilfinning efst í kollinum
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
   mið 08. apríl 2026 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Aron Sigurðarson.
Aron Sigurðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á kynningarfundi Bestu deildarinnar var birt niðurstaða úr leikmannakönnun. Leikmenn voru spurðir hver yrði besti leikmaður deildarinnar á komandi tímabili. Aron Sigurðarson (1993) fékk flestu atkvæðin og næstur á eftir honum kom Gylfi Þór Sigurðsson.

Fótbolti.net ræddi við fyrirliða KR eftir kynningarfundinn.

„Ég er spenntur, við erum búnir að eiga gott undirbúningstímabil og við erum klárir. Ég get ekki beðið eftir að þetta byrji," segir Aron.

„Þetta er skemmtilegt, maður er pínu stoltur, en auðvitað á eftir að spila þetta mót og það eru frábærir leikmenn í þessari deild. Það er alveg pínu kitl að leikmenn kjósi mann, ég lýg því ekki."

Sterkari andlega eftir tímabilið í fyrra
Aroni líst vel á KR liðið þegar fjórir dagar eru í fyrsta deildar leik.

„Meira lið, meiri heild og orðnir sterkari andlega eftir tímabilið í fyrra finnst mér. Það eru spennandi tímar framundan."

Á síðasta tímabili spilaði KR úrslitaleik um að halda sæti sínu í deildinni.

Þarf að halda í gildin þótt búið sé að kveikja ljósin
KR tekur á móti Keflavík í fyrsta leik.

„Við þurfum að eiga góða frammistöðu, vera orkumiklir, gíraðir, þora að halda í boltann, þora að spila eftir okkar gildum þó að það sé kviknað á ljósunum og tímabilið sé að byrja. Við þurfum að gera okkar, ef við ætlum að verða betri í því sem við erum að gera, þá þurfum við að þora spila þegar alvaran byrjar. Þannig vinnum við öll liðin í deildinni."

„Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrir framan stuðningsmennina. Ég hefði kosið að spila á Meistaravöllum í bikarnum en af því að við búum á Íslandi þá þurftum við að færa hann inn. Ég get ekki beðið eftir því að spila á vonandi fullum Meistaravöllum."


1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl>
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner