Miðjumaðurinn Mateus Fernandes er gríðarlega eftirsóttur en West Ham United ætlar ekki að selja hann ódýrt þrátt fyrir fall úr úrvalsdeildinni.
Manchester United hefur verið sterklega orðað við Fernandes en á dögunum er spænska stórveldið Real Madrid búið að bætast við. Stórveldi Arsenal, PSG og Atlético Madrid hafa einnig verið nefnd til sögunnar sem áhugasöm.
West Ham vill ekki selja Fernandes en eftir að hafa fundað með umboðsteymi leikmannsins komust aðilar að heiðursmannasamkomulagi.
Hamrarnir eru tilbúnir að selja leikmanninn fyrir 85 milljónir punda.
Fernandes er 21 árs Portúgali sem West Ham keypti fyrir um 42 milljónir punda síðasta sumar. West Ham vill því fá tvöfalt hærra verð fyrir leikmanninn heldur en hann kostaði í fyrra.
Fernandes er með fjögur ár eftir af samningi við Hamrana.
08.06.2026 09:40
Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes


