Úkraínski bakvörðurinn Vitalii Mykolenko er búinn að gera nýjan þriggja ára samning við Everton.
Mykolenko er mikilvægur hlekkur undir stjórn David Moyes og hefur verið eftirsóttur af ýmsum liðum undanfarin misseri. Bournemouth reyndi að kaupa hann í fyrrasumar og undanfarnar vikur hafa RB Leipzig, Eintracht Frankfurt og ónefnd lið úr Serie A og La Liga sýnt honum áhuga.
Vinstri bakvörðurinn er 27 ára gamall og lék nánast alla leiki Everton á nýliðnu tímabili. Hann á í heildina 159 leiki að baki á fjórum og hálfu ári hjá félaginu.
Mykolenko er með 53 leiki að baki fyrir úkraínska landsliðið.
Everton þarf ekki að hafa áhyggjur af vinstri bakvarðarstöðunni í bili þar sem Mykolenko er með hinn tvítuga Adam Aznou til vara. Aznou er uppalinn hjá Barcelona og FC Bayern, með þrjá A-landsleiki að baki fyrir Marokkó.
Vitalii Mykolenko has signed a new three-year Everton contract to commit his future to the Club until the end of June 2029. ??
— Everton (@Everton) June 8, 2026


