Newcastle United er svo gott sem búið að ganga frá kaupum á markverðinum Ewen Jaouen fyrir 18 milljónir punda.
Franskir fjölmiðlar hafa fjallað um málið og töluðu þeir um 21 til 25 milljón punda kaupverð, en Fabrizio Romano segir upphæðina vera lægri.
Jaouen er 20 ára gamall og hefur spilað sex leiki fyrir yngri landslið Frakka. Hann er aðalmarkvörður hjá Stade de Reims sem leikur í næstefstu deild í Frakklandi og hefur vakið athygli stórvelda undanfarin misseri.
Real Madrid, Chelsea og Borussia Dortmund eru meðal félagsliða sem eru að fylgjast með þróun markvarðarins.
Jaouen mun berjast við Nick Pope um byrjunarliðssætið á milli stanga Newcastle. Aaron Ramsdale veitti Pope samkeppni á nýliðinni leiktíð en Newcastle kaus gegn því að nýta kaupákvæðið í lánssamningnum, sem hljóðaði upp á 20 milljónir punda.
Newcastle átti mikið vonbrigðatímabil á síðustu leiktíð en Eddie Howe hélt sæti sínu við stjórnvölinn.
Talið er að Jaouen verði kynntur sem nýr leikmaður Newcastle í vikunni.
05.06.2026 11:55
Newcastle að borga væna summu fyrir ungan markvörð





