Mörg dæmi um að lið spili of lengi á slitnu grasi - „Ætla svo sannarlega að vona það“

„Mörg dæmi um það að það sé spilað á völlum of lengi og að þeir séu orðnir vel slitnir.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borgin sinnt viðhaldinu vel en það breytir ekki að völlurinn sé kominn á tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías sárþjáður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísfold Marý borin af velli í síðasta mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Segir gervigrasið duga í fimm ár og svo þurfi að skipta því út.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mörg dæmi um það að það sé spilað á völlum of lengi og að þeir séu orðnir vel slitnir.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, leikmaður kvennaliðs Víkings, sleit krossband á vellinum í síðasta mánuði og þá lenti liðsfélagi hennar, Shaina Ashouri, í því sama í september í fyrra.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, sagði í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn í gær að honum þætti ekki boðlegt að liðið byði upp á grasið sem er á Víkingsvelli. „Mér finnst að Reykjavíkurborg þurfi aðeins að fara rífa sig upp og hjálpa félögum og gera betur í þessum málum,“ sagði Sölvi.
Fótbolti.net sló á þráðinn til Kára Árnasonar, yfirmann fótboltamála hjá Víkingi, og spurði hann út í stöðuna á vellinum.

Sölvi um meiðsli Elíasar: Reykjavíkurborg þarf að rífa sig upp og gera betur
„Það sama var í gangi hjá Stjörnunni og hjá okkur, þeir spiluðu sirka tveimur árum of lengi. Hjá Breiðabliki var þetta skárra, skipt um gras á réttum tíma - það var allt í lagi fram á lokadag fannst manni.
Ef ég ætti að stjórna þessu að þá væru samningar við borgina að eitthvað skipulag og samningar segja til um að eftir fimm ár eru vellirnir endurnýjaðir,“ segir Kári.
Er áætlað að ráðast í endurnýjun á grasinu fljótlega?
„Ég ætla svo sannarlega að vona það. Hvort við fáum úttekt á næsta ári kemur bara í ljós.“
Víkingur hefur þá átt í virku samtali við Reykjavíkurborg?
„Það er gott samtal og það hefur verið stutt vel við bakið á okkur með viðhaldið. En það er vitað nákvæmar dagsetningar hvenær þessir vellir eru endurnýjaðir. Það er sagt 5-10 ár en reynslan segir okkur að þetta dugi akkúrat í fimm ár og svo þurfi að skipta þessu út.“
„Það væri fínt að nálgast þetta þannig að við vitum að líftíminn sé fimm ár og þá er hægt að setja endurnýjun gervigrasvalla á tímalínuna; Fylkir á þessum tíma, Víkingur á þessum og svo framvegis,“ segir Kári að lokum.

Borgin sinnt viðhaldinu vel en það breytir ekki að völlurinn sé kominn á tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías sárþjáður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísfold Marý borin af velli í síðasta mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Segir gervigrasið duga í fimm ár og svo þurfi að skipta því út.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




