Fotbolti.net
08.08.12 - 14:30
Daníel Freyr Jónsson

Hoffenheim fær Joselu frá Real Madrid (Staðfest)

Hoffenheim fær Joselu frá Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Hoffenheim hefur staðfest kaupin á sóknarmanninum Joselu frá Real Madrid. Hann skrifaði undir samning til sumarsins 2016.
Markus Babbel, stjóri Hoffenheim, hefur verið að leita á eftir framherja til að auka breiddina fram á við og hefur hann nú fengið þann liðsstyrk sem hann var eftir á.

Hinn 22 ára gamli Spánverji kom fyrir óuppgefna upphæð, en hann spilaði fyrir varalið Madrídarliðsins í vetur og skoraði þar 26 mörk í þriðju efstu deild. Hann lék einn leik fyrir aðallið Real Madrid.

Joselu er uppalinn hjá Celta Vigo og gekk í raðir Spánarmeistarana sumarið 2009. Hann hafði verið orðaður við West Ham í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.