Fotbolti.net
08.08.12 - 17:24
Elvar Geir Magnússon

Lucas Moura til PSG (Staðfest)

Lucas Moura til PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Paris Saint-Germain hefur komist að samkomulagi við Sao Paulo í Brasilíu um kaupverðið á Lucas Moura. Heimasíða franska félagsins hefur greint frá þessu,

Samningurinn tekur gildi frá og með áramótum svo leikmaðurinn mun fara til PSG í janúar 2013. Hann hefur skrifað undir samning til 2017.
Kaupverðið er sagt nema 34 milljónum punda sem er hreint ótrúleg upphæð.

Inter og Manchester United reyndu einnig að fá Lucas Moura í sínar ráðir en gátu ekki keppt við gríðarlega þykkt veski PSG.

Fullt nafn: Lucas Rodriguez Moura Da Silva
Staða: Miðjumaður
Fæðingardagur: 13. ágúst 1992
Hæð: 1,72
Þyngd: 66 kg
A-landsleikir fyrur Brasilíu: 15

Ferill með Sao Paulo:
2010 : 24 leikir - 4 mörk
2011: 28 leikir - 9 mörk
2012: 4 leikir - 2 mörk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.