08.09.17 - 22:29
Elvar Geir Magnússon
Eiður Smári leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Eiður Smári lék 88 landsleiki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári og Sveinn Aron þegar Eiður gekk í raðir Barcelona.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Eiður Smári lék 88 landsleiki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen hefur formlega lagt skóna á hilluna og er hættur knattspyrnuiðkun. Þetta kemur fram í þættinum 1-1 á Stöð 2 Sport en Eiður verður 39 ára í næstu viku.
Eiður er einn allra besti fótboltamaður sem Ísland hefur alið.
„Ég held að ég muni aldrei hætta í fótbolta. Ég mun mæta á æfingar og leika mér. Ég mun spila fótbolta þangað til ég get ekki labbað. En með atvinnumannaknattspyrnu, ég held að það sé löngu ljóst. Það er ár síðan ég spilaði síðast og ég er enn stífur þegar ég vakna á morgnana,\" segir Eiður í þættinum samkvæmt Vísi.
Eiður hefur ekkert spilað síðan hann yfirgaf Molde í byrjun ágúst á síðasta ári.
Hann lék 88 landsleiki fyrir Ísland og skoraði 26 mörk. Hans síðasti landsleikur var tapleikurinn gegn Frökkum í 8-liða úrslitum Evrópumótsins á síðasta ári. Hans síðasta landsliðsmark kom í 4-0 sigrinum gegn Liechtenstein í vináttuleik í júní í fyrra.
Eiður kom víða við á ferlinum eftir að hann yfirgaf Val 1994. Hápunkturinn kom eftir að hann gekk í raðir Chelsea frá Bolton. Hjá Chelsea varð hann lykilmaður í sóknarleiknum og varð Englandsmeistari 2005 og 2006.
Hann gekk svo í raðir Barcelona og vann Spánarmeistaratitilinn og Meistaradeildina með liðinu 2009. Hann átti ekki fast sæti í byrjunarliði Börsunga en var mikilvægur hlekkur og lék í stórum leikjum.
Á atvinnumannaferlinum lék Eiður í Hollandi, Englandi, Spáni, Frakklandi, Belgíu, Grikklandi, Kína og Noregi.
Vildi ekki fjölmiðlafár
Í þættinum segir Eiður frá því að hann hafi verið nálægt því að ganga í raðir Breiðabliks í Pepsi-deildinni í sumar. Ekkert varð þó af því að hann spilaði með með elsta syni sínum, Sveini Aroni.
„Ég vildi ekki fjölmiðlafárið í kringum þetta. Feðgar að spila saman og allt sem myndi fylgja því. Ég hef aldrei haft mikinn áhuga á að spila á Íslandi en það kitlaði eitthvað að spila með syni mínum,\" sagði Eiður.
„Mér fannst það ekki náttúrulegt. Ég vildi bara leyfa honum að vera í friði. Minn tími er búinn og hans tími á að fá að renna upp og hann á að njóta sín.\"