Delap nálgast Man Utd - Rift við Laporte - Arsenal og Liverpool berjast um Huijsen
   sun 08. september 2024 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Þjálfarinn stöðvaði skyndisókn andstæðinganna
Það átti ótrúlegt atvik sér stað í sjöttu efstu deild ítalska boltans, sem er áhugamannadeild, á dögunum.

Þjálfari Subbiano var gríðarlega spenntur á hliðarlínunni en leist ekki á blikuna þegar hans menn töpuðu boltanum og hleyptu andstæðingunum í skyndisókn.

Hann ákvað því að grípa til sinna mála og hljóp langt inn á völlinn til að fella leikmann andstæðinganna sem nálgaðist markið óðfluga.

Leikmenn andstæðinganna brugðust ekki vel við en þjálfari Subbiano fékk að líta rauða spjaldið og getur átt von á löngu banni frá fótbolta fyrir þessa hegðun sína.

Subbiano's coach receives a red card for tackling an opposing player in a Promozione match (Italian sixth division).
byu/LadyAmaterasu insoccer

Athugasemdir
banner