Fotbolti.net
08.09.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Tvenna Reijnders trompaði tvennu Toney

Tvenna Reijnders trompaði tvennu Toney
Canon

Mynd: EPA

Það var nóg um að vera í efstu deild sádi-arabíska boltans í dag þar sem Al-Qadsiah mætti Al-Ahli í stórleik.
Tijjani Reijnders, sem lék með Manchester City á síðustu leiktíð, skoraði tvennu í fyrri hálfleik fyrir sterkt lið heimamanna.

Ivan Toney minnkaði muninn með tvennu í síðari hálfleik en tókst ekki að jafna metin, svo lokatölur urðu 3-2.

Mateo Retegui, Julian Quinones, Julian Weigl og Nacho Fernández voru meðal byrjunarliðsmanna Al-Qadsiah á meðan Edouard Mendy, Merih Demiral, Roger Ibanez, Galeno og Francisco Trincao voru meðal samherja Toney í tapliði Al-Ahli.

Al-Qadsiah jafnar Al-Hilal á toppi deildarinnar með þessum sigri, þar sem liðin eiga 15 stig eftir 6 umferðir. Ógnarsterkt lið Al-Hilal tapaði afar óvænt á heimavelli gegn Alexandre Lacazette og félögum í Neom SC í gær.

Al-Ittihad er í þriðja sæti, einu stigi á eftir toppliðunum, eftir sigur gegn Al-Fayha í dag. Youssef En-Nesyri gerði sigurmarkið úr vítaspyrnu í síðari hálfleik og voru Danilo Pereira, Houssem Aouar og Steven Bergwijn meðal byrjunarliðsmanna.

Fyrr í dag gerðu Moussa Dembélé og félagar í Al-Ettifaq markalaust jafntefli við Al-Faisaly á meðan Al-Hazem hafði betur gegn Al-Taawon.

Al-Qadsiah 3 - 2 Al-Ahli
1-0 Tijjani Reijnders ('14)
2-0 Mohammed Abu Al Shamat ('45+1)
3-0 Tijjani Reijnders ('45+3)
3-1 Ivan Toney ('63)
3-2 Ivan Toney ('82)

Al-Ittihad 2 - 1 Al-Fayha
1-0 George Ilenikhena ('43)
1-1 Jason Remeseiro ('45+4)
2-1 Youssef En-Nesyri ('68, víti)

Al-Ettifaq 0 - 0 Al-Faisaly

Al-Hazem 1 - 0 Al-Taawon

1-0 Aboubacar Bah ('3)
Tvenna Reijnders trompaði tvennu Toney
Canon

Mynd: EPA

Tvenna Reijnders trompaði tvennu Toney
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.