Álitið - Erfiðustu stuðningsmennirnir?

Stuðningsmenn Víkings fengu flest atkvæði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mafían hefur mátt muna fífil sinn fegri.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Víkingar máluðu Meistaravelli rauða.

Mynd: Kári Snorrason

,,Ég heyrði KA menn stela “ Rauðir - Svartir “ chantinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lét Stjörnuna heyra það í viðtali á Fótbolta.net.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn Víkings fengu flest atkvæði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrjár umferðir eru eftir og hefur Víkingur þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Spennan er öllu meiri í botnbaráttunni þar sem hart er barist um áframhaldandi sæti í deildinni á næsta ári.
Til að hita upp fyrir endurkomu deildarinnar fékk Fótbolti.net fimm álitsgjafa til að líta yfir tímabilið til þessa. Spurning dagsins snýr að erfiðustu stuðningsmönnunum.
Það er FH-mafían. 17. árið í röð. Þvílíkt öflugir í ár. Neinei Berserkir hafa verið langbestir og fylgt liðinu sínu sem hefur verið á toppnum í allt sumar.
Jóhann Páll Ástvaldsson
Víkingar eru sjálfdæmdir hér. Mikil stemning og góður stuðningur en málningin á Meistaravöllum var yfirprjón. Tel að allir velþenkjandi Víkingar geri sér grein fyrir því. Það er einhver línudans þarna og Blikar voru réttu megin við línuna þegar þeir máluðu pallana um árið.
En við fögnum því að það sé kominn alvöru rígur, stemning og töggur í deildina. Hún þarf það. Stemningin í Fossvoginum var tryllt en þetta var of mikið.
Trommurnar, vökvunarkerfið, Barfly í hátalaranum. Stefnir í alvöru viðureignir á næsta ári.
Valur Gunnarsson
Stuðningssveitir eru því miður af frekar skornum skammti þessa dagana. Víkingar eru klárlega erfiðastir en þeir ásamt Miðjunni hjá KR eru samt langbestu sveitirnar í dag. Rauða málningin og köll á gráu svæði gera Víkingssveitina að þeirri erfiðustu.
Viktor Unnar Illugason
Erfiðasti stuðningsmaðurinn er Lúlli Jónasar eftir viðtalið á .net, verið erfitt að lesa það fyrir marga. Erfiðasta stuðningsmannasveitin er líklega hjá Víkingi. Þurfti að ræsa út fólk að spasla fyrir leikinn a Meistaravöllum og lögregluútkall stuttu seinna.
Ásgeir Frank Ásgeirsson
Ég held það sé nú enginn sérstakur stuðningsmaður sem hefur verið eitthvað erfiður. Allir að reyna að skemmta sér og hafa gaman að þessu, Rígurinn á milli KR og Víkings hefur verið skemmtilegur og kryddað mótið aðeins. Ég heyrði KA menn stela “ Rauðir - Svartir “ chantinu sem Vikingar hafa sungið hátt í sumar gegn Þór í “ Gulir - Bláir “ sem hljómaði stórfurðulega en þeim er líklegast alveg sama þar sem þeir tóku góða 3 punkta.

Álitið - Mestu vonbrigðin?

Álitið - Hvað hefur komið mest á óvart?

Mafían hefur mátt muna fífil sinn fegri.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Víkingar máluðu Meistaravelli rauða.

Mynd: Kári Snorrason

,,Ég heyrði KA menn stela “ Rauðir - Svartir “ chantinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lét Stjörnuna heyra það í viðtali á Fótbolta.net.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
