Fotbolti.net
08.10.26 - 15:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Líklegt byrjunarlið Íslands - Mikilvægir leikmenn fjarverandi

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Guðrún mun pottþétt koma inn í hjarta varnarinnar.

Guðrún mun pottþétt koma inn í hjarta varnarinnar.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Eimskip
Allir þeir leikmenn sem ferðuðust með íslenska landsliðinu út til Króatíu eru klárir í leik morgundagsins, fyrri leikinn í fyrra umspilinu fyrir HM í Brasilíu.

Það vantar þó nokkra lykilmenn sem hefðu eflaust byrjað leikinn. Sædís Rún Heiðarsdóttir og Sandra María Jessen, leikmenn Köln, eru meiddar og sömu sögu er að segja af Lindu Líf Boama. Þá á Ingibjörg Sigurðardóttir von á barni.


Þar sem Ingibjörg dettur út þá mun Guðrún Arnardóttir pottþétt koma inn í miðvörðinn, sína náttúrulegu stöðu, en hún hefur mest verið að spila í hægri bakverði hjá landsliðinu upp á síðkastið. Við spáum því að Arna Eiríksdóttir, sem er náttúrulegur miðvörður, komi inn í hægri bakvörðinn í staðinn en hún hefur verið í stóru hlutverki hjá Vålerenga í Noregi og spilar þar í þriggja manna vörn.

Vinstra megin er Sædís Rún fastamaður og enginn augljós kostur í hennar stað. VIð spáum því að María Catharina Ólafsdóttir Gros fái tækifæri í hennar stað.

Miðjan er augljós en fremstu þrír eru kannski smá spurningamerki. Sandra María hefur verið að byrja fremst en hún er meidd. Sveindís Jane Jónsdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir byrja líklega á köntunum og þá er bara spurning hver verður nían. Hlín Eiríksdóttir, systir Örnu, er þar líklegasti kosturinn en hún hefur verið að spila vel frá því hún gekk í raðir Malmö.

Leikurinn á morgun hefst 16:45 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
María Catharina Ólafsdóttir Gros.

María Catharina Ólafsdóttir Gros.

Canon

Mynd: Djurgården

Sveindís er komin aftur eftir meiðsli.

Sveindís er komin aftur eftir meiðsli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.