Fotbolti.net
08.11.12 - 07:00
Elvar Geir Magnússon

Brynjar Kristmunds áfram hjá Víkingi Ólafsvík (Staðfest)

Brynjar Kristmunds áfram hjá Víkingi Ólafsvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Bakvörðurinn Brynjar Kristmundsson skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Víking Ólafsvík. Hann mun því leika með liðinu í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Brynjar er félaginu góðu kunnur enda á hann að baki yfir 100 leiki með liðinu. Brynjar fór að láni til Vals sumarið 2011 þar sem hann kom við sögu í 7 leikjum í efstu deild
Síðastliðið tímabil lék hann svo 8 leiki með Hlíðarendafélaginu áður en hann sneri aftur til Ólafsvíkur.

„Vera mín hjá Val gekk ekki eins og ég hafði ætlað mér. Ég lenti í erfiðum meiðslum síðasta vetur sem fylgdu mér inn í sumarið og í kjölfarið átti ég erfitt uppdráttar,\" segir Brynjar við heimasíðu Ólafsvíkurliðsins.

„Ástæðan fyrir því að ég kem aftur til Víkings er að reyna að ná grunninum aftur upp með þjálfara sem ég þekki vel og veit hversu góður er.\"

„Það skiptir mig miklu máli að vera á stað þar sem ég veit að mér líður vel og að vera í umhverfi þar sem ég veit að ég get bætt mig sem leikmann.“

Ólafsvíkurliðið hefur alltaf lagt mikla áherslu á Futsal (innanhússfótbolta) og er það fyrsta verkefni liðsins í vetur.

„Þetta er nánast allt önnur íþrótt en maður getur tekið mjög mikið með sér frá Futsalinu yfir í hefðbundinn fótbolta,\" segir Brynjar.

Heimild: Víkingur Ólafsvík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.