Fotbolti.net
08.11.12 - 14:02
Elvar Geir Magnússon

Egill Atlason í Leikni (Staðfest)

Egill Atlason í Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Egill Atlason skrifaði í dag undir samning við 1. deildarlið Leiknis í Breiðholti. Egill er þrítugur fjölhæfur leikmaður sem hefur leikið sem miðvörður undanfarin ár.

Hann er einmitt hugsaður sem miðvörður hjá Leikni en liðið þurfti að fylla skarð Gunnars Einarssonar sem er með skó sína á hillunni.
Egill hefur leikið frá árinu 2003 með Víking Reykjavík í efstu og næst-efstu deild. Hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá KR.

„Egill er góður fengur fyrir liðið okkar því hann er bæði fljótur og áræðinn ásamt því að hafa mikla og góða reynslu sem kemur vonandi til með að nýtast vel á komandi leiktíð,\" segir á heimasíðu Leiknis.

Egill mun einnig koma að þjálfun hjá Leikni og meðal annars starfa með KB, varaliði félagsins, en þar hafa yngri leikmenn Leiknis verið í stóru hlutverki undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.