Anthony Burke heitir maðurinn sem var handtekinn vegna ásakana um að hafa verið með kynþáttaníð á grannaslag Manchester City og Manchester United.
Fred, brasilískur miðjumaður Manchester United, var að fara að taka hornspyrnu þegar hlutum var kastað í átt að honum úr stúkunni. Í sjónvarpsútsendingu sást Burke leika eftir apa í stúkunni.
Burke vinnur hjá byggingarfyrirtækinu Kier Group en fyrirtækið hefur nú sent hann í leyfi meðan málið er í rannsókn.

Sjálfur hefur Burke skrifað færslu á vegg sinn á Facebook þar sem hann segist ekki hafa verið með kynþáttaníð á leiknum.
Athugasemdir