Fotbolti.net
08.12.19 - 20:00
Arnar Helgi Magnússon

Evans: Jákvætt að fólk tali um okkur sem helstu keppinauta Liverpool

Evans: Jákvætt að fólk tali um okkur sem helstu keppinauta Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Jonny Evans var á skotskónum þegar Leicester vann sannfærandi sigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag. Evans stangaði hornspyrnu James Maddison í netið í upphafi síðari hálfleiks. Leiknum lauk með 1-4 sigri Leicester.

Leicester hefur nú unnið átta leiki í röð en er þrátt fyrir það átta stigum á eftir toppliði Liverpool.
„Það er jákvætt að fólk sé að tala um okkur sem helstu keppinauta Liverpool um enska titilinn," sagði Evans eftir leikinn í dag.

„Við erum þarna uppi, höldum áfram að berjast og gefum öllum liðum erfiðan leik. Það er langt í land en við erum að spila vel í augnablikinu og við reynum að njóta þess."

„Það er ekki ólíklegt að fólk byrji enn meira að tala um okkur eftir þennan sannfærandi sigur í dag," sagði Evans að lokum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Tottenham7-46
17Coventry7-86
18Fulham7-35
19Nott. Forest7-45
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.