Fotbolti.net
08.12.19 - 11:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Suarez skoraði mark sem hann telur það besta á ferlinum

Suarez fagnar markinu.

Suarez fagnar markinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Úrúgvæski sóknarmaðurinn Luis Suarez skoraði mark af flottari gerðinni þegar Barcelona vann 5-2 sigur á Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
Lionel Messi stal senunni - eins og svo oft áður - með þrennu sinni. Suarez skoraði þó glæsilegt mark, sem hann lýsti sem fallegasta marki ferilsins eftir leikinn.

„Þetta er besta mark ferilsins. Þetta var þröngt færi og síðasti möguleikinn minn var að skjóta með hælnum," sagði Suarez að því kemur fram á Goal.com.

Markið hjá hinum 32 ára gamla Suaraez má sjá hérna.

Sjá einnig:
Suarez velur fimm bestu sóknarmenn sögunnar
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.