Fotbolti.net
09.01.18 - 11:26
Magnús Már Einarsson

Davíð Snorri tekinn við U17 (Staðfest)

Davíð Snorri Jónasson.

Davíð Snorri Jónasson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KSÍ hefur gengið frá tveggja ára samningi við Davíð Snorra Jónasson um þjálfun U17 karla. Davíð mun jafnframt sjá um þjálfun U16 karla og verður aðstoðarþjálfari U19 karla.

Davíð hefur undanfarin tvö ár verið aðstoðarþjálfari hjá Stjörnunni en í morgun var tilkynnt að hann væri hættur þar. Hann stýrði áður Leikni R. frá 2013 til 2015 ásamt Frey Alexanderssyni.
„Tilfinningin er mjög góð. Þetta er spennandi verkefni í krefjandi umhverfi sem ég hlakka til að takast á við,“ sagði Davíð Snorri í dag, en hann er spenntur að taka þátt í frekari uppbyggingu íslenskrar knattspyrnu.

„Uppbyggingin hefur verið mikil og við vekjum athygli alls staðar. Það er mikil vinna að baki og ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum til að halda því góða starfi sem hefur verið unnið í landsliðunum.“

Hann hefur þegar hafið störf hjá KSÍ og er um að ræða fullt starf sem er skiljanlega töluverð breyting frá því að þjálfa félagslið.

„Ég mun geta einbeitt mér að fullu að knattspyrnuþjálfun sem hefur alltaf verið markmið hjá mér. Mesta breytingin er að fara af æfingavellinum alla daga og vinna með afmarkaðan hóp eins og maður gerir hjá félagsliði. Í starfi mínu sem landsliðsþjálfari mun ég vera í miklum samskiptum við félögin og fylgjast með þeim aldursflokkum sem tilheyra yngri landsliðunum.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.