Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
   mán 09. febrúar 2026 16:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnór Ingvi gaf ekki kost á sér: Aðrir hlutir mikilvægari
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Ingvi Traustason gaf ekki kost á sér í komandi landsliðsverkefni. Framundan er vináttuleikur gegn Mexíkó ytra eftir rúmar tvær vikur og eru 19 af 20 leikmönnum í hópnum að spila á Íslandi.

Arnór er þaulreyndur landsliðsmaður, 32 ára miðjumaður sem á að baki 67 landsleiki og sex landsliðsmörk. Hann byrjaði í vináttuleik gegn Norður-Írlandi síðasta sumar en var svo ekki valinn í hópana í undankeppni HM í kjölfarið. Arnór samdi við KR í vetur og ræddi við Fótbolta.net í dag.

„Ég ákvað að afþakka. Það eru aðrir hlutir sem eru mikilvægari akkúrat núna - fjölskyldan. Við erum að koma okkur fyrir, þau eru nýkomin til landsins. Það eru aðrir hlutir sem skipta mig meira máli, staður og stund," segir Arnór sem flutti til Íslands frá Svíþjóð fyrr í vetur.

Ef þetta hefði verið keppnisleikur, hefðir þú verið klár?

„Já, þá hefði ég verið klár. Akkúrat núna fannst mér best að gera þetta svona."

Það er ekki langt síðan þú spilaðir með landsliðinu. Hugsaðir þú út í að ákvörðunin sem þú tækir núna hefði mögulega áhrif á möguleikann á því að þú myndir spila aftur með landsliðinu?

„Nei. Ef horft er í söguna þá hafa þessir leikir (vináttuleikir utan landsleikjaglugga) ekki haft áhrif."

Hvernig er skrokkurinn, hvernig er að vera farinn af stað með KR?

„Ég er að fíla það mjög vel að vera kominn af stað með KR. Ég var löglegur núna 5. febrúar og spilaði seinni 45 mínúturnar á móti Grindavík. Ég er í mjög fínu standi en þarf að komast í betra leikform. Það kemur í næstu leikjum," segir Arnór.
Athugasemdir
banner
banner