Francesco Caputo, framherji Sassuolo, skoraði tvö mörk í 3-0 sigri liðsins á Brescia í dag en þetta var síðasti leikurinn á Ítalíu áður en deildin tekur hlé.
Ítalska deildin fer í frí til 3. apríl til að hefta útbreiðslu á kórónaveirunni en hún hefur reynst afar skæð á Ítalíu. Það ríkir neyðarástand í landinu og á fólk að halda sig heima.
Caputo skoraði tvö mörk en hann fagnaði fyrra markinu með að ná í miða.
„Þetta verður allt í lagi. Haldið ykkur heima," stóð á miðanum sem Caputo hélt á og sýndi myndavélinni.
Sjáðu markið og skilaboðin
Athugasemdir