Eiður Smári eftir þungt tap: Mér fannst við betri aðilinn


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Fyrstu viðbrögð eru það að, úrslitin gefa ekki alveg rétta mynd af leiknum," sagði Eiður Smári Guðjohnsen þjálfari KA eftir 3-0 tap gegn FH í dag.
„Mér fannst við vera með góða stjórn á leiknum þangað til við fáum á okkur fyrsta markið. Við komum samt sem áður grimmir út í seinni hálfleik, aftur fannst mér við vera með stjórn á leiknum. FH skorar svo bara drauma mark og komast í 2-0. Þá var þetta orðin mikil brekka. Við nýttum ekki þau færi sem við sköpuðum okkur, þar kannski liggur bara munurinn," sagði Eiður.
KA menn komu mjög sterkir inn í seinni hálfleikinn eftir að vera 1-0 undir og fá tvö mjög góð færi. Það hjálpaði lítið því fljótlega eftir það fá þeir á sig mark eftir frábært skot fyrir utan teig, og síðan mjög óheppilegt sjálfsmark.
„Í rauninni er það bara munurinn á liðunum í dag, að þeir skoruðu mörkin en ekki við. Mér fannst við heilt yfir betri aðilinn, en það er náttúrulega erfitt að segja að maður sé betri aðilinn og tapa 3-0. Við sköpuðum okkur allavega nóg af færum til að skora allavega eitt, tvö, ef ekki þrjú mörk. Þar liggur bara munurinn," sagði Eiður.
KA hefur lent í mikið af meiðslum á tímabilinu, en þrír leikmenn sneru aftur í dag. Það voru Hallgrímur Mar, Hrannar Björn og markmaðurinn Steinþór Már.
„Það kemur reynsla með þeim og það koma tilfinningar, þetta eru menn með KA hjarta. Á svona tímapunkti vilt þú hafa alla heila, og þeir koma með ferskleika inn í þetta," sagði Eiður.
Úrslitin hefðu getað farið verr ef aðrir leikir hefðu farið gegn KA, en Þór og ÍBV töpuðu og því fallbaráttu pakkinn enn mjög þéttur.
„Það er kannski örlítil sárabót, en á endanum eru það við sem þurfum að gera okkar til þess að halda okkur í þessari deild. Það má ekki gleyma því að það er ennþá meira svekkelsi að hleypa FH fram úr okkur. Þetta er fljótt að breytast og við þurfum bara að einbeita okkur að því sem við ætlum að gera," sagði Eiður.
Næsti leikur hjá KA er grannaslagurinn gegn Þór sem er gríðarlega mikilvægur leikur.
„Ég get ekki ímyndað mér að við Haddi þurfum að peppa menn í leikinn. Þeir ættu að vera peppaðir í alla leiki, hvað þá Akureyrarslag. Mér skilst að þetta sé aðeins meira en bara þriggja stiga leikur," sagði Eiður.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
