Fotbolti.net
13.09.26 - 17:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Tíu leikmenn Man City unnu borgarslaginn

England: Tíu leikmenn Man City unnu borgarslaginn
Canon

Mynd: EPA

Manchester Utd 0 - 1 Manchester City
0-1 Erling Haaland ('60 )
Rautt spjald: Phil Foden, Manchester City ('23)
Man Utd fékk Man City í heimsókn í borgarslag í úrvalsdeildinni í dag. Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill hvað færi varðar.

Það dró hins vegar til tíðinda um miðjan hálfleikinn þegar Phil Foden fékk að líta rauða spjaldið fyrir að sparka í magann á Bruno Fernandes þegar sá síðarnefndi sparkaði Foden niður.

Undir lok fyrri hálfleiks var Marcus Rashford hársbreidd frá því að koma Man Utd yfir en átti skot í stöngina úr aukaspyrnu. Snemma í seinni hálfleik átti Kobbie Mainoo síðan skot fyrir utan teiginn og aftur small boltinn í stöng.

Man City komst yfir eftir klukkutíma leik þegar Erling Haaland kom boltanum í netið eftir fyrirgjöf. Haaland virtist vera rangstæður en VAR staðfesti að Patrick Dorgu hafi gert hann réttstæðan þegar hann teygði sig á eftir boltanum til að reyna koma í veg fyrir fyrirgjöfina.

Enzo Fernandes átti síðan hörku skot en Senne Lammens varði boltann í stöngina. Bruno Fernandes átti skot stuttu síðar en Gianluigi Donnarumma sá við honum.

Bryan Mbeumo fékk dauðafæri til að jafna metin í lokin en Donnarumma varði stórkostlega frá honum. Man City er í 2. sæti með tólf stig eftir fjórar umferðir en Man Utd er í 13. sæti með fjögur stig.
England: Tíu leikmenn Man City unnu borgarslaginn
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Everton7+110
8Leeds6+39
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Crystal Palace6-37
14Man Utd606
15Coventry6-66
16Nott. Forest6-35
17Fulham7-35
18Sunderland6-64
19Bournemouth6-63
20Tottenham6-63
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.